GRÓÐURSETNING
Gróðursetning
Það er gaman að gróðursetja en það er ekki sama hvernig það er gert. Gróðursetningu þarf að undirbúa vel eigi hún að bera tilætlaðan árangur.
Plöntur eru lifandi verur. Þær þarf að meðhöndla varlega og sjá til þess að þær hafi það sem þær þurfa til að lifa af. Það er ekki sama hvar þær eru gróðursettar, þar sem mismunandi land hentar plöntum misvel. Eins er ekki sama hvernig plöntur eru gróðursettar, en hægt er að auka lífslíkur þeirra til muna með því að fara rétt að við gróðursetningu.