AÐ RÆKTA SKÓG
Að rækta skóg
Það eru margir sem hafa atvinnu af að rækta og hugsa um skóga en einnig er fjöldi fólks sem ræktar tré og skóga vegna þess að það hefur gaman og yndi af því.
Skógar eru mjög mikilvægir fyrir lífið á jörðinni, þeir binda koltvíoxíð úr loftinu, eru heimkynni margra dýra og eru nytjaðir svo fátt eitt sé nefnt.
Eyðing skóga hefur verið mikil á undanförnum öldum og með skógrækt er verið að reyna að snúa vörn í sókn. Samt sem áður henta ekki öll landsvæði til skógræktar og sums staðar á alls ekki að rækta skóg. Gæta verður þess að rækta ekki skóg á landsvæðum sem eru ætluð til annarrar notkunar, í votlendi eða á svæðum sem eru vernduð.
Yrkja | Námsgagnastofnun | Skógræktarfélag Íslands