SKÓGAR
Skógar
Skógar gegna mikilvægu hlutverki hér á jörðinni. Þeir binda koltvíoxíð úr andrúmsloftinu, halda jarðveginum föstum og geyma mikið vatn.

Menn hafa nýtt skógana í árþúsundir og gera enn. Stór hluti mannkyns notar timbur sem eldivið til upphitunar og matargerðar. Timbur er notað í húsgögn, til húsagerðar, í pappír og í ýmsa smáhluti. Mörg lyf eru búin til úr jurtum sem vaxa í skógum og skógar eru heimkynni margra dýrategunda.

Regnskógar hitabeltisins eru tegundaauðugustu staðir jarðarinnar. Þar finnast tugþúsundir lífverutegunda og eru enn að finnast þar nýjar plöntu- og dýrategundir.
Yrkja  |  Námsgagnastofnun  |  Skógræktarfélag Íslands